Daily Archives: 20. júní, 07

Bjarni Brando í Brúðkaupi Fígarós!

Sex konur klæddu mig í og úr í heila tvo klukkutíma eftir hádegið í gær milli þess sem þær störðu á mig, ýmist standandi eða á hnjánum. Búningamátun er órjúfanlegur hluti af undirbúiningi fyrir sýningu og sé um nýja uppfærslu að ræða (eins og núna) þarf að taka margar mikilvægar ákvarðanir.

Á brjóstvasinn á jakkanum að vera alvöru eða bara þykistunni? Ein eða tvær tölur á jakkanum? Klof að aftan? Axlapúðar? Oftar en ekki er það síðan svo að leikstjórinn ákveður að maður sé kominn úr jakkanum áður en maður stígur inn á sviðið. En hvað um það, þetta er hluti af þessu ferli og sjálfsagt að taka það alvarlega. Mér finnst þetta svo sem ekkert leiðinlegt en það reynir samt á að horfa á sjálfan sig í fullri stærð, tvo klukkutíma í spegli. Ég mátaði tvenn jakkaföt í dag; önnur gráglansandi en hinn “beis” hvít. Bæði með vesti og svo fæ ég hvíta skirtu og flott bindi við bæði fötin.

Venjulegast er lögfræðidoktorinn Bartolo bitur eldri maður, afkáralegur og skollóttur eða með barokkhárkollu. Þannig er það ekki í þetta skiptið. Uppfærslan gerist í nútímanum og útlitslega fyrirmyndin að perónu Bartolo er Marlon Brando. Ég fæ meira að segja að reykja vindla í sýningunni, klípa í kvenfólk, daðra og vera dónalegur. Danski leikstjórinn lagði höndina á öxlina á mér í gær og sagði: “Bjarni, reyndu að setja þig í spor Bartolo eins og hann er í uppfærslunni minni. Þar er hann einn af þessum eldri mönnum sem hefur gaman að sér töluvert yngri konum!

Ég verð vist að reyna að setja mig í hans spor.