Utan á hurðinni á íbúðinni sem ég dvel í hérna í Vínarborg hékk í gær poki með auglýsingapésum. Einn þeirra var frá versluninni SPAR. Ég var kominn að því að henda þessu í ruslið þegar ég rak augun í verðið á Puntigamer bjórdós: 59 cent.
Ég ákvað því að taka nokkrar “stikkprufur” út úr þessum bæklingi. Hér koma þær:
| Bjórdós (1/2 l) | Puntigamer | 0,59€ | 50 kr | |
| Súkkuladi (100 gr) | Milka | 0,55€ | 46 kr | |
| Snakk (170 gr) | Pringles | 1,19€ | 99 kr | |
| Gúrka (1 stk) | 0,39€ | 33 kr | ||
| Tómatar (1 kg) | 0,99€ | 83 kr | ||
| Kjúkl. bringa/læri (1 kg) | Huber | 3,70€ | 316 kr |
Þess ber auðvitað að geta að um tilboðsverð er að ræða. Ég er reyndar ekki alveg með íslenska verðlagið á hreinu en eitthvað segir mér að ég þurfi að hafa aðeins meiri pening í buddunni þegar þessar vörur eru keyptar á Fróni.
Enda fer maður með túrista í búið í svona hryllingsferðir
Kjullinn er á þetta 1600 kall
Bjórinn á 220
Annað skiptir ekki máli
Maður kaupir sér samloku og appelsínusafa og borgar fyrir það 5-600 kall í 10-11 !!!!!!